|
|
26.03.2007 10:45:37 / atlijons
Hef svosem ekkert mikið að segja en segi samt allt ágætt bara  Er
að minnsta kosti á lífi.........
»
11.03.2006 23:20:09 / atlijons
HÆTTUR AÐ BLOGGA Í BILI
»
04.03.2006 10:56:57 / atlijons
þá er maður kominn á suðurlandið aftur eftir þvílíkt góða ferð á
Akureyri. Ég, Bjamminn, Ingi Hlynur og KÓ lögðumst í leiðangur
fyrir tæpri viku síðan, skelltum okkur í skíðaferð með fyrsta
árinu. Þetta var snilldin ein og vill ég nota tækifærið og þakka
þessum mönnum fyrir frábæra ferð og Kjartan it´s gonna be mighty
fine að vera tvær vikur saman á Kanarí heheheh JE
Við hófum ferðina á sunnudaginn fyrir viku síðan og ekki byrjaði
það gæfulega því korteri fyrir brottför tók Harrison upp á því að
verða bremsulaus, þakka fyrir að það hafi ekki verið upp á heiði
einhversstaðar, þannig að við fórum á bílnum hans Inga, rúmgóður
Golf og ég sá ekkert nema ennið á bjartmari alla leiðina vegna
mikils farangurs. Fyrsta stopp var í Borgarnesi þar sem við fórum á
körfuboltaleik, Skallagrímur-Snæfell og mig minnir að Snæfell hafi
unnið. Svo var brunað norður á bóginn og komum seint til Akureyrar.
Á mánudaginn var farið í Hlíðarfjall og fórum kringum hádegið, fínt
veður. Eitthvað var maður farinn að ryðga í brettamennskunni en
lifði daginn af. Fórum í sund eins og alla hina dagana, fórum í
eimbaðið og renndum okkur í rennibrautinni í barnalauginni.
Þriðjudagurinn var fyndinn dagur, í fyrstu ferðinni minni niður
fjallið datt ég á hnakkann og fékk heilahristing og missti sjónina
á vinstra auganu sem er ekki enn komin aftur 100%, ég fór upp á
slysó sem var leiðinlegt og svo þegar ég fór upp í fjall aftur þann
daginn þá mætti ég Bjammanum og Oddnýju á leið upp á sjúkrahús því
hún hafði dottið svona svakalega á rófubeinið  Ég fór bara með
þeim og við Bjartmar biðum í rúman klukkutíma á biðstofunni, það
var leiðinlegt en gerðum grína að læknunum þarna svo það stytti
okkur stundir. Fórum og horfðum á landsleikinn á Dátanum og þvílík
hörmung....... Hitti Baldur formann, Jón Torfa og Jónsa og horfðum
við frekar á æfingu hjá ungfrú norðurland en að fylgjast með
leiknum  Fórum á Café Amour á eftir og sötruðum smá öl og svo lá
leiðin í beddann. Miðvikudagurinn var snilld, byrjaði að snjóa
mikið og það var skítkalt, ég fór upp í strýtu í þessari brettaferð
sem er lyftan upp á topp. Það gekk vel en ég er ekki það góður á
þessu að ég geti rennt mér að ráði í 90% halla......
Reyndar dó ég næstum því þennan daginn því ég skellti mér upp í
strýtu og var í lyftunni á eftir Bjartmari og hann datt úr lyftunni
og ég "varð" þá líka að fara úr lyftunni en fór aðeins ofar og gekk
í átt að brautinni, datt 20 sinnum á leiðinn af því að það var bara
glæra undir smá snjóföl sem lá ofan á og það þurfti að vanda
skrefin. Að lokum komst ég að brautinni og Kjartan beið eftir mér.
Þegar ég var að fara að undirbúa mig undir það að fara í brettið þá
flaug ég á hausinn og missti brettið, ég kastaði mér á eftir því
niður gríðarlegan bratta og hélt í aftari bindinguna og þaut niður
brekkuna á maganum(kviðnum) og ég var utan við brautina og stefndi
í hraunið. Þegar ég áttaði mig á því að ég væri ekki að fara að
stoppa þá reyndi ég að koma mér yfir á rassinn og við það missti ég
brettið og það þaut 20-30 metra lengra niður og lennti á grjóti og
tók quite a pounding á rassinn fyrir vikið..... á meðan þessum
mikla lífsháska stóð þá var Kjartan að DEYJA úr hlátri en baðst svo
síðar afsökunar á að hafa hlegið því jú maður hlær ekki að manni í
lífsháska, hvað þá litlum manni í lífsháska.
Fór á fótboltaæfingu með Hömrunum og gat ekki neitt en var þó betri
en Jónsi, alveg satt!!!!!
Fimmtudagurinn var besti dagurinn, fórum í fjallið kl 10:30 og
vorum til 16:30, fórum í sund og svo á bjórkynningu hjá Viking, sem
var snilld.... Eftir kynninguna var haldið á Greifann sem stóð
fyrir sínu, Amour eftir það og eintóm gleði og mikið fyllerí á sumu
fólki.......
Nú ætla ég að hætta í bili og Ingi, ég er ekki að væla eða kvarta
yfir lífsháskanum, ég er bara að segja fólki frá þannig að ég þarf
ekki bréf..........
En já á meðan ég man þá var ég tekinn hrikalega af Kjartani og Inga
á heimleiðinni og ég MUN hefna mín þótt síðar verði
múhahahahahahaha
over and out
»
26.02.2006 02:21:44 / atlijons
Já lesendur góðir ég er búinn að vera á laugarvatni í skólanum sem
er alltaf næs, en á föstudaginn var dans eftir hádegi og aftur í
morgun (lau). Þessi áfangi er náttúrulega tær snilld, við erum að
dansa jive, tjútt, rokk, cha cha cha, mambó svo eitthvað sé nefnt
og vitiði þetta er rosaleg hreyfing sem maður fær útúr þessu. En já
ég var sem sagt fyrir austan í morgun tók Birtuling með mér og
Lilju systir sem barnapíu á meðan ég dansaði, er núna í Reykjavík
hjá mömmu og pabba og er á leiðinni norður á morgun á skíði og
vinna í lokaverkefninu mínu...... Já ég ætla að læra!!!!!! En ætla
náttúrulega ekki á skíði því töffararnir fara á bretti ekki satt
???? Stefni á að hitta líðinn sem ég þekki fyrir norðan eins og
Bulla pizzu og Jón Þormar (stórglæpon). Hlakka mikið til.
Þetta er svona um það bil það eina sem er í gangi hjá mér þessa
dagana eða svona hér um bil, held ég..... Ef einhver veit betur þá
má hann láta mig vita STRAX!!!!!
Vinir? hvað er það? Geta strákar og stelpur verið "bara" vinir?
Hvað ef stelpan og strákurinn hafa einhvern tíman átt sitt móment
og segjum sem svo að þau hafi talað um allt milli himins og jarðar,
svo slitnar upp úr og annar aðilinn vill endilega að þau séu vinir
og ætlast til að þau tali um sömu hluti og þau gerðu áður. Er þetta
raunhæft, burtséð frá því hvort þau treysti hvoru öðru? Ég rakst á
grein um þetta á netinu, man ekki alveg hvar, og las hana, þess
vegna varð ég að koma með skoðun mína á þessu. Sko ef einhverjar
tilfinningar hafa verið í spilinu þá tel ég að það væri afskaplega
sárt fyrir hvorn aðilann sem það er reyna að halda í einhvern
vinskap ef um tilfinningar hafi verið að ræða og tala nú ekki um ef
hann eða hún hafa enn tilfinningar. Best væri að slíta öll tengsl
og reyna að öðlast nýtt líf í stað þess að nudda sér upp úr
einhverju sem aldrei getur orðið eða eitthvað slíkt. Slík
sjálfseyðingarhvöt er til í okkur öllum og ég held að hún sé
manninum eðlislæg þó svo hún birtist okkur á mörgum sviðum ekki
bara í tengslum við hitt kynið. En í mínum huga er sársauki sem
maður skapar sér sjálfur verstur, maður veltir sér upp úr hlutum
einungis til að kvelja sjálfan sig. Lífið er skemmtilegra en svo,
alla vega segja sumir það (maður dregur það í efa stundum), en ég
er líka stórfurðulegt fyrirbæri. Sannir vinir fyrirgefa, sannir
vinir elska og sönnum vinum er ekki sama.............
Takk fyrir og góða nótt
Farið vel með ykkur
»
18.02.2006 22:05:33 / atlijons
Jæja kæru lesendur þá er kominn tími á smá pistil. Ekki
mikið merkileg vika þessi sem er að líða fór reyndar í bíó með
Bjammanum í gær á Walk the line, snilldarmynd þar á ferð og Johnny
Cash er töffari það verður að segjast eins og er, eða var öllu
heldur blessuð sé minning hans. Stórfréttin að mínu mati var alla
vega sú að hún Birta dóttir mín tók upp á því að byrja að ganga
bara svona 1,2 og 3..... hún er æði skæði!!!! Í dag fór ég og
bekkurinn minn úr KHÍ í nýju frjálsíþróttahöllina til að dæma á
íslandsmóti fatlaðra í frjálsum, það gekk vel og var tær
snilld. Það er æðislegt að sjá hvað íþróttirnar eru að gera
fyrir þetta fólk og þessa krakka, keppnisskapið vantar ekki í suma
og var hörkukeppni í gangi í allan dag.
Mínir menn í Man.Utd töpuðu í dag fyrir liverpool, sá ekki leikinn
en það var örugglega "verðskuldaður" sigur. Leitt að heyra að
Alan Smith skuli hafa meiðst þetta illa, þar sem hann fótbrotnaði
og fór úr ökklalið.
Annars er ég sprækur sem lækur og var að horfa á júróvisjón og
mikið rosalega er hún Sylvía Nótt að rústa þessari keppni, það fer
ekki á milli mála og ég vona að útlendingarnir fatti húmorinn líka,
eða misskilja hann eins og einhverjir gera eflaust...... Lade
svinge, já bobbysox eru núna að syngja og þetta eru orðnar
háelliærar kellingar sjittt, ég er ekki svona gamall man samt vel
eftir þessu...... en já ætli ég sé ekki bara farinn að horfa
á Lost, er búinn að vera týndur í þeim þáttum upp á síðkastið,
magnað helvíti og vel skrifað...
Hafið það gott og lifið heil
kv
Sveinninn
»
12.02.2006 17:17:54 / atlijons
Jæja....... þá er þessari helgi senn
að ljúka og sem betur fer segi ég. En áður en ég ræði
það þá vill ég segja frá því að skólinn er byrjaður, er búinn
að fara í dans og það er eintóm snilld, þvílíkt fjör. Við
Orri Hjaltalín (sem var svo góður í gamla cm) erum
sambýlingar og erum að vinna saman lokaverkefni sem er bara
spennandi og erum komnir aðeins á skrið með það. Þessi
helgi fór í vinnu hjá mínum, er að vinna í íþróttahúsinu hér
á laugarvatni og það var þorrablót um helgina. Mjög
gaman að sjá alla pissfulla og vitlausa en hins vegar
leiðinlegt að þurfa að vakta húsið á meðan á ósköpunum stóð,
stalst reyndar einu sinni á dansgólfið þökk sé Katie
Johns...... Tókum smá cha cha cha sem gekk
ágætlega............
Dagurinn í dag hefur farið í þrif á húsinu og það er ógeðslega
skítugt og virkilega sóðalegt, mjög gaman sem sagt....... En
ég var kominn heim klukkan hálf 6 í morgun, gat ekki sofnað þannig
að ég horfði á 2 Lost þætti og sofnaði að lokum um hálf 9 og var
mættur að þrífa kl 12:30, DUGNAÐARFORKUR.......
Heyrumst, over & out
»
09.02.2006 03:42:29 / atlijons
4 STÖRF SEM ÉG HEF UNNIÐ UM ÆVINA:
Á leikskóla, í Fiski, Össur h/f og þjónn á veitingahúsi
4 BÍÓMYNDIR SEM ÉG GÆTI HORFT Á AFTUR OG AFTUR:
Braveheart, Snatch, Super Troopers og Aladdin
4 STAÐIR SEM ÉG HEF BÚIÐ Á:
Reykjavík, Hrísey, Kópasker, Laugarvatn
4 SJÓNVARPSÞÆTTIR SEM MÉR LÍKAR:
Lost, Friends, 24, Family guy (eru fleiri)
4 STAÐIR SEM ÉG HEF HEIMSÓTT Í FRÍUM:
Las islas Canarias, London, Benidorm, Ásbyrgi
4 SÍÐUR SEM ÉG SKOÐA DAGLEGA:
Mbl, Fotbolti.net, blog.central.is/snortur, Birtan mín
4 BÆKUR SEM ÉG LES OFT:
Queer eye for the straight guy, íslenskur stjörnuatlas, handbók um
ritun og frágang og Syrpan
4 STAÐIR SEM ÉG VILDI HELDUR VERA Á NÚNA:
Ítalía, Í mínu eigin húsnæði, að spila á Dúddanum, að keyra nýja
BMV 5 4,8 bílinn minn á hraðbrautum Þýskalands
4 STRÁKAR SEM ÉG SKORA Á AÐ GERA ÞETTA:
Hjörvar, Bjartmar, Eyfi og Baldvin Júl
»
05.02.2006 00:36:50 / atlijons
Já þið fáu sem lesið síðuna, ég er nokkuð ánægður með ykkur að
nenna þessu  Fyrst vill ég koma með svörin ú getrauninni sem ég
var með síðast:
1. Stanley Goodspeed = Nick Cage í The Rock
2. Latrell Spencer = Terry Crews í White chicks
3. Arcot Ramathorn = Jay Chandrasekhar í super troopers
4. Jack Torrance = Jack Nicholson í The Shining
5. Harry Callahan = Clint Eastwood í Dirty Harry
6. Joe = þessi var tricky, þetta er Clint Eastwood í The good the
bad and the ugly
7. Martin Riggs = Mel Gibson í Lethal Weapon myndunum
8. Paul Edgecomb = Tom Hanks í Green mile
9. Charlie Baileygates = Jim Carrey í Me myself and Irene
10. Richard Hayden = David Spade í Tommy Boy
Þar hafiði það og aldrei að vita nema maður komi með aðra getraun
síðar.
Ekki hefur margt drifið á daga mína síðan ég skrifaði síðast, ekki
nema það að ég er búinn að kenna í æfingakennslunni og það gekk
allt saman gríðarlega vel og sérstaklega fannst mér frábært að fá
það tækifæri að fá að kenna í sérdeildinni, yndislegir krakkar.
Þessi vika sem er að líða hefur einkennst (skrifað svona  ) af
leiðindum, erfiðleikum og sorg! Ég mun ekki ræða það nánar en ég
bið fyrir öllum þeim sem eiga í erfiðleikum og sendi þeim styrk!!!!
Leiðindi er eitthvað sem ég þoli ekki, það að fólk skuli rífast í
stað þess að geta sest niður og spjallað saman er alveg óþolandi
(hver hefur ekki lent í þessu). Ég ætla að halda áfram að tala um
hluti sem ég þoli ekki  eitt af þeim er t.d. ósannindi og það að
manneskjur geti ekki komið hreint fram við hvora aðra. Ég er ekki
alsaklaus í þessum efnum og viðurkenni það fúslega að ég hef komið
svona fram og bið alla þá aðila afsökunar hér með. En maður á það
til að þroskast með aldrinum og maðurinn er þannig gerður að hann
lærir af mistökunum, flestir alla vega
Horfði á sjónvarpið í kvöld og sá Sylvíu Nótt rúlla upp evróvisjón
keppninni, djöfull var hún flott og töff. Birgitta var sæt og lagið
var voða sætt líka. Er annars að byrja í skólanum aftur á
mánudaginn, ekki mikill spenningur fyrir því, ekki nema þá helst að
fara að æfa almennilega. Þetta er síðasta önnin og það eru blendnar
tilfinningar sem fara um mann, það er fínt að fara að klára þetta
en svo á móti er þetta svo ljúft líf sem maður lifir þarna. Úfff
ekkert nema vol og væl í gangi hérna þannig að ætli sé ekki best að
hafa þetta ekki lengra í bili.......
Hlýt að fara að koma með skemmtilegri pistla
Adios amigos
»
31.01.2006 13:59:12 / atlijons
Já kæru félagar, ekki voru allir karlmennirnir sáttir við það sem
ég skrifaði hérna síðast nema hugsanlega Hjörvar, enda erum við
báðir góðir strákar  Af mér er ekki mikið að frétta, var með
Birtuna frá föstudegi til laugardags og það var hrikalega gaman,
skemmtum okkur konunglega eins og alltaf reyndar..... Á
laugardaginn gerðist ekki mikið nema hvað ég horfði spenntur á Geir
Ólafs skíta upp á herðar í evróvisjón keppninni, það er með
ólíkindum hvað maðurinn er gjörsamlega sneyddur öllu sem kallast
hæfileikar, ég meina maðurinn er alkunnur fyrir almennan ruddaskap
við almúgann því jú hann virðist telja sig ofar okkur hina, hann er
lítill, rindlalegur, ekki myndarlegur og síðast en ekki síst alls
enginn söngvari ....... Annars finnst mér þessi keppni frekar lame
svona yfir höfuð, slök og með ólíkindum hvað lögin eru LÉLEG,
afhverju ekki að senda eitthvað almennilegt í þessa keppni einu
sinni, förum við Íslendingar ekki í allar keppnir til að vinna, til
hvers þá að senda eitthvað helvítis rusl alltaf (þá er ég aðalega
að tala um lögin/tónlistina, ekki flytjendurna). Ég er handviss um
að við myndum gjörsigra þessa keppni ef við fengjum t.d. Barða úr
BangGang til að semja, þvílíkur snillingur þar á ferð. En RÚV má
eiga það að umfang keppninnar er til fyrirmyndar og mjög flott í
alla staði, þó svo mér finnist kynnar á svona keppnum alltaf of
stífir og það virkar ekki að segja fyrirfram framreidda brandara
sem þau eru látin lesa af promptornum....... Þetta verður oft svo
vandræðalegt.
En nóg um þetta, ég fór á æfingu á sunnud sem var helvíti gaman,
fór svo á Player´s með félaga mínum sem átti afmæli þá, til
hamingju með það Elmar, og horfðum á Man Utd rúlla yfir Wolves,
Íslendingar rassskellta af Ungverjum og Liverpool rétt merja
Portsmouth...... Í gær (mánud) kenndi ég svo í Borgó og það var
sérdeildin sem við kenndum saman ég og Róbert. Þetta eru snilldar
krakkar þarna, allir einlægir og virkilega til í að framkvæma það
sem við setjum fyrir. Svo var brunað upp á Laugarvatn að vinna og
ég er þar enn því ég á að vinna í kv líka........
Úr hvaða myndum eru þessir karakterar? (bannað að leita á netinu)
1. Stanley Goodspeed
2. Latrell Spencer
3. Arcot Ramathorn
4. Jack Torrance
5. Harry Callahan
6. Joe
7. Martin Riggs
8. Paul Edgecomb
9. Charlie Baileygates
10. Richard Hayden
P.s. Ég þoli ekki blogg þar sem fólk notar endalaust af einhverjum
helvítis brosköllum og líka annað, ég er nú ekki með fullkomna
stafsetningu en menn mættu kynna sér reglurnar um Y!!! Þoli ekki
þegar menn tala um neiðarástand og hvað þessi er indislegur og
jafnvel þegar talað er um að einhver sé veykur.
Takk fyrir......
»
27.01.2006 03:39:25 / atlijons
Já kæru lesendur ef þið eruð þarna einhversstaðar, ég hef ekkert
verið að drepast úr skriffinsku síðustu misseri en bæti úr því
núna. Það virðist sem svo að ég geti ekki skrifað þegar bjart er
úti heldur þurfi að vera hánótt, skil þetta hreinlega ekki. En það
er eitthvað svo heillandi við nóttina, ég meina það eru alltaf
einhverjir til sem eru svo hræddir við nóttina og myrkrið eða
skammdegisþunglyndi eins og sumir vilja kalla það. Ég segi bara það
að ef það væri engin nótt og enginn myrkur þá væru engar stjörnur
(vó rólegur á væmninni) en ég meina það, stjörnubjartur himinn er
eitthvað það flottasta sem ég veit um og hef alla tíð síðan ég var
smápolli horft upp í himinninn og starað og hugsað mikið og pælt í
þessu fyrirbæri. Ég hef hingað til ekki verið talinn vera með vott
af rómantík í mér (og finnst ekki sjálfum), kannski af því að ég
skynja rómantíkina öðruvísi en aðrir, hver veit en ég verð að segja
ykkur frá minni hugsun um rómantík.... Það er snjór úti, frost,
hörkufrost meira að segja, alveg stjörnubjartur himinn og þetta er
einhversstaðar utan við höfuðborgina. Tveir einstaklingar ganga
saman, hvort sem um ræðir vini eða par... (CRY ME A RIVER) já ég
veit þetta er ekki alveg í anda karlmanns sem er að reyna að halda
úti bloggsíðu, hljómar meira svona eins og homminn sem er vinur
allra stelpnanna
En nei ég er nú ekki þannig, það er næsta víst. Ég varð að deila
þessu með ykkur veit hreinlega ekki afhverju, sorry.........
Hef ekki meira að segja þessa nóttina
Farið varlega og þangað til næst, bæbæ
»
22.01.2006 12:09:16 / atlijons
Hversu oft hefur manni ekki liðið skringilega og jafnvel allt að
því illa og oftast útaf einhverjum smámunum sem skipta svo á
endanum akkúrat engu máli? Maður stendur sig að þessu annað slagið
og ég held hreinlega að ég sé kominn með ógeð á því  Þetta er
ákvörðun sem maður tekur sjálfur, vaknar á morgnanna og segir við
sjálfan sig: "í dag ætla ég að láta mér líða vel!!" og viti menn,
þetta svínvirkar. Stundum er betra að líta aðeins í kringum sig
áður en maður fer að væla og röfla yfir einhverjum smámunum,
auðvitað getur manni liðið virkilega illa en á móti kemur þá er
yfirleitt hægt að hafa það verra! Þetta er staðreynd sem allt of
fáir gera sér grein fyrir. Hversu oft lenda menn í því að eyða
tímanum í að væla yfir og/eða argast út í hitt kynið til dæmis?
TILGANGSLAUST....... það er ALLTAF hægt að láta sér líða vel, þú
verður bara að taka ákvörðun um það að þú viljir það  Jæja nóg um
þetta tuð, af mér er svo sem ekkert mikið að frétta. Er búinn að
vera að vinna á vatninu alla helgina, reyndar mikil yfirvinna því
það er búið að vera mikið um að vera í íþróttahúsinu hérna um
helgina, frjálsíþróttamót, körfuboltaleikur og svo eitthvað lið
hérna í æfingabúðum......... Hef nú ekki mikið að segja núna en kem
með eitthvað um leið og poppar upp..... over and out
»
19.01.2006 16:50:32 / atlijons
Jæja nú er ég orðinn 28 ára en líður samt ekkert öðruvísi er meira
að segja enn jafn lítill og ég var deginum á undan..... Ótrúlegt!!
Annars er ég góður bara, var að vinna á mánudag og þriðjudag á
vatninu sem var bara gaman. Ég er búinn að vera að kenna núna þessa
viku í Borgarholtsskóla og það er mjög gaman, Íþróttakennslan
verklega fer fram að mestu leyti í world class sem er gríðarlega
gaman. Kenndi bóklega tíma í dag og meeeen hvað ég var stressaður
til að byrja með, svitnaði og varð þurr í kjaftinum en það var svo
allt í lagi að kenna þetta, fínasta upprifjun að lesa aðeins í
þjálfun, heilsa og vellíðan (kvöl, pína og vanlíðan). Seinna í dag
áttum við Robbi að kenna verklegan tíma í World Class og vorum
búnir að skipuleggja gríðarlega fínan tímaseðil en nei það mættu 3
einstaklingar í tímann. Einn af þeim var vanur að æfa í
líkamsræktarstöð og fékk hann því að æfa einn en við Róbert fylgdum
hinum einstaklingunum eftir sem nokkurs konar einkaþjálfarar og
vorum við að fíla okkur vel í þessu. Annars er svo sem ekki mikið
að frétta, en ég vill fá komment frá ykkur um það hvort ég eigi að
halda þessu bloggdæmi áfram eða ekki.........
Adios amigos
Old man rivers over and out
»
16.01.2006 18:27:50 / atlijons
Svo sem allt sæmilegt að frétta, vill byrja á helginni sem leið.
Var með Birtuna mína á föstudagsnóttina sem var auðvitað æði skæði,
hún er mesta yndi í heimi þessi elska  Á laugardaginn var
dagurinn tekinn snemma þar sem ég fékk símhringingu mjög snemma eða
um 11 leytið og var þar á ferðinni Jón Þormar hinn eini sanni sem
bað mig að pikka sig upp þar sem hann var fastur hjá einhverju
fljóði sem hefur væntanlega látið hann hafa það. Það var nú minnsta
málið að sækja vin sinn enda gríðarleg tilviljun að hann skuli hafa
verið í næsta stigagangi við mig þennan umrædda morgun. Við fórum í
brunch á McDonalds og gúffuðum í okkur kólesterólsprengjum að hætti
ameríkana...... Snörtur átti ekki stórleik um kvöldið ræðum ekki um
það hér. Við Jón skelltum okkur svo á NASA um kvöldið og skemmtum
okkur konunglega við undirleik Skítamórals, einkavina Bjartmars!!!!
Hittum fullt af fólki og þar fór fremstur í flokki Bimbó sjálfur
eða Steini Agnars...... Skemmtilegt ball
Var frekar þreyttur á sunnudaginn og gerði ýmislegt skemmtilegt,
fór í sund með Birtu
Í dag er mánudagur og það var fyrsti dagur í kennslu hjá mér, er
s.s. að byrja í æfingakennslu. Er í Borgarholtsskóla í Grafarvogi
og mér líst ágætlega á þetta verð ég að segja, kvíður reyndar pínu
fyrir bóklegu tímunum en það þýðir lítið að væla....
Á morgun er stór dagur þar sem ég á afmæli og vill ég byrja á því
að óska félögum mínum þeim Davíð Oddssyni og Jim Carrey til
hamingju með að eiga afmæli sama dag og ég
Ætla að baka köku í tilefni dagsins jei............
»
14.01.2006 09:24:49 / atlijons
Jæja góðir hálsar, merkisdagur í dag þar sem að LEIKURINN er í
dag.... Jamms ekki spurning! Annars vill ég koma fram þakklæti til
þeirra bræðra Jónsa og Garðars fyrir að vera fyrstir til að kvitta
í gestabókina (geri ekki upp á milli þeirra um hvor þeirra var á
undan) Annars er það að frétta að á mánudaginn þá byrja ég í
æfingakennslu í Borgarholtsskóla og kvíður mér nett fyrir það,
ástæðan er ekki íþróttatímarnir heldur bókleg kennsla. Já ég sagði
bókleg kennsla þar sem ég tel mig ekki vera á heimavelli, hef
aldrei á ævinni getað staðið fyrir framan fólk og talað án þess að
verða rauður í framan og skjálfandi röddinni. Vona bara að maður
sleppi lifandi frá þessu  En já maður er annars svona helvíti
hress bara og býst ég við að þetta verði góður dagur, já hef góða
tilfinningu fyrir þessu, kannski er ég með óráði þar sem klukkan er
rúmlega níu en maður veit aldrei. Jæja er farinn í sturtu......
Farið vel með ykkur
»
13.01.2006 10:05:45 / atlijons
Já góðan dag góðir hálsar, það er svo sannarlega föstudagurinn 13.
í dag!!! Vaknaði snemma í dag og sótti dóttur mína til að keyra
hana á leikskólann, sem hefði svosem ekki verið mikið mál NEMA
fyrir það litla helvíti sem menn kalla snjó!!!!!! Það hefur
gjörsamlega kyngt niður snjó í nótt. Það tók mig 10 min að skafa af
bílnum og þar sem ég næ ekki upp á þak sökum hæðarskorts þá þurfti
ég að skilja eftir væna hrúgu eftir upp á bílnum sem er óþolandi
því ég þoli ekki fólk sem skefur ekki ofan af bílnum sínum. Alla
vega þá tók það mig 20 mínútur að komast úr grafarvogi þar sem ég
bý upp í grafarholt þar sem hún Birta mín býr, sem er fokk langur
tími þessa stuttu vegalengd.
Annars hefur þessi dagur einhverra hluta vegna aldrei (7,9,13) haft
nein neikvæð áhrif á mig, en hins vegar virðist ALLTAF eitthvað
koma fyrir mig daginn eftir, kannski maður sé bara svona seinn,
hver veit. Þessi helgi verður skemmtileg, í kvöld og nótt verð ég
með Birtuna og á morgun er svo stórleikur í knattspyrnuheiminum í
Egilshöll þar sem 3.flokkur Fjölnis í grafarvogi tekur á móti
stórliði Snartar frá Kópaskeri, en fyrir þá sem ekki vita þá þjálfa
ég og spila með Snerti..... Stefnan er svo tekin eitthvað út á
lífið um kvöldið, sérstaklega þar sem La Torre Þormar og Gæi bróðir
hans ætla að koma að norðan í leikinn..........
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, farinn að leggja mig enda
vaknaði ég 8 og klukkan að ganga 10 núna, úffff þetta er erfitt
líf. Þangað til næst, farið varlega!!!!!!!
»
Síður: 1 2
|
Dagsetning
10. febrúar 2012
|